Friday, January 7, 2011

Árið 2010 í hnotskurn

Krullumaður ársins: Okkar maður, Jens Kristinn Gíslason.

Okkar maður enn einu sinni krullumaður ársins
Undir lok ársins var liðsmaður Mammúta, Jens Kristinn Gíslason, valinn krullumaður ársins. Þetta er þriðja árið í röð og fjórða skipti alls sem leikmaður liðsins hlýtur þennan heiður. Skemmtileg frétt á vef SA hér.

Árangur á árinu:
Utan svells:
Þrír liðsmenn eignuðust barn á árinu, þeir Óli, Jón Ingi og Jens.

Á svellinu:
20 sigrar, 14 töp.

Áramótamótið
: Liðsmenn í 1., 2., 3. og 5. sæti (dregið í lið)
Aðventumótið: Liðsmenn í 1. og 3. sæti (einstaklingskeppni)
Bikarmótið: Undanúrslit
Gimli Cup: 6. sæti
Akureyrarmótið: 4. sæti
Evrópumótið, C-keppni: Þrír liðsmenn fóru utan (Halli, Jens, Sveinn): 4 sigrar, 2 töp, 3. sæti
Ice Cup: Í fríi - liðsmenn spiluðu með öðrum liðum
Íslandsmótið: Sigurvegarar
Deilarkeppni Íslandsmótsins: Sigurvegarar
Janúarmótið: Sigurvegarar

Áramótamótið 2010

Sigurliðið í Áramótamótinu - Léttfeti: Okkar maður, Jón Ingi Sigurðsson, ásamt þeim Gunnari H. Jóhannessyni og Elísabetu Ingu Ásgrímsdóttur.

Dregið var saman í lið í Áramótamótinu og voru liðsmenn Mammúta því í ýmsum liðum. Árangur liðsmanna:

1. sæti: Jón Ingi Sigurðsson (Léttfeti) 5 stig
2. sæti: Ólafur Númason (Bláa fjöðrin) 5 stig
3. sæti: Haraldur Ingólfssn (The Dabbys) 4 stig
5. sæti: Sveinn H. Steingrímsson (RSK) 2 stig

Aðventumótið 2010

Sigurvegari í Aðventumótinu: Okkar maður, Haraldur Ingólfsson tekur við verðlaunum frá Hallgrími Valssyni, formanni vorum.

Aðventumótið var einstaklingsmót - árangur liðsmanna:
1. sæti: Haraldur Ingólfsson 78 stig
2. sæti: Jens Kristinn Gíslason 59 stig

Tuesday, December 7, 2010

Bikarmótið 2010

Liðið féll út í fjögurra liða úrslitum.

8/12 Mammútar - Garpar 4-6 (Halli, Jens, Óli, Sveinn)
6/12 Mammútar - Víkingar 4-3 (Halli, Jens, Óli, Sveinn)

Gimli Cup 2010

Árangur: 6. sæti, 2 sigrar, 4 töp
Jón Ingi, Ólafur, Jens, Haraldur, Sveinn

29/11 Mammútar - Víkingar 9-0
24/11 Mammútar - Fífurnar 3-4
22/11 Mammútar - Fálkar 4-5
15/11 Mammútar - Riddarar 4-6
8/11 Mammútar - Skytturnar 6-4
1/11 Mammútar - Garpar 1-5

Sunday, October 10, 2010

Akureyrarmótið 2010

Árangur: 4. sæti, 1 sigur, 4 töp
Jón Ingi, Ólafur, Jens, Haraldur, Sveinn

18/10 Mammútar - Víkingar 3-5 (Jón Ingi, Óli, Halli, Sveinn)
13/10 Mammútar - Riddarar 5-7 (Jón Ingi, Óli, Jens, Halli)
11/10 Mammútar - Fálkar 3-6 (Jón Ingi, Óli, Jens, Halli)
6/10 Mammútar - Fífurnar 3-6 (Jón Ingi, Jens, Halli, Sveinn)
4/10 Mammútar - Garpar 8-2 (Jens, Halli, Óli)

Tuesday, May 25, 2010

Þrír litlir Mammútar á leiðinni...

Mammútar líta þannig á sjálfa sig að þeir séu svo skemmtilegir að rétt sé að fjölga þessum skemmtilegu eintökum með því að framleiða afkvæmi - nánar hér.

Wednesday, March 24, 2010

Íslandsmeistarar 2010


Íslandsmótið 2010 - úrslitakeppni:
Laugardagur 27. mars kl. 16.30
Final
Mammútar - Garpar 6-4

Laugardagur 27. mars kl. 9.00
Semi-final
Mammútar - Fífurnar 5-3

Föstudagur 26. mars kl. 22.00
Page play-off 1v2:
Mammútar - Garpar 3-5

Monday, March 22, 2010

Deildarmeistarar Íslandsmótsins 2010

Mammútar eru deildarmeistarar Íslandsmótsins í krullu annað árið í röð eftir öruggan sigur á Skyttunum í lokaumferðinni. Liðið endaði með 10 sigra, tveimur sigrum meira en næstu lið. Myndunum stálum við blygðunarlaust frá Hallgrími Valssyni, formanni Krulludeildar SA.

Tuesday, February 2, 2010

Íslandsmótið 2010 - deildarkeppnin

Sigrar og töp:
Tímabilið 2009-2010: 22-17
 - þar af innanlands: 20-10
 - þar af erlendis: 2-7
Á árinu 2010: 14-4
Deildarkeppni Íslandsmótsins: 10-4

22/2 Mammútar - Skytturnar 9-2 (Jón Ingi, Óli, Jens, Halli)
15/3 Mammútar - Üllevål  10-1 (Jón Ingi, Óli, Jens, Halli)
10/3 Mammútar - Víkingar 2-4 (Jón Ingi, Óli, Halli, Sveinn)
18/3 Mammútar - Riddarar 8-4 (Jón Ingi, Óli, Jens, Halli)
3/3 Mammútar - Garpar  7-2 (Jón Ingi, Óli, Jens, Halli)
1/3 Mammútar - Svarta gengið 3-5 (Óli, Jens, Halli, Sveinn)
22/2 Mammútar - Fífurnar  9-1 (Jón Ingi, Óli, Jens, Halli)

17/2 Mammútar - Skytturnar  11-2 (Jón Ingi, Óli, Halli)
15/2 Mammútar - Üllevål 4-6 (Jón Ingi, Jens, Halli, Sveinn)
10/2 Mammútar - Víkingar 5-7 (Jón Ingi, Óli, Jens, Halli)
8/2 Mammútar - Riddarar 6-4 (Jón Ingi, Óli, Jens, Halli)
1/2 Mammútar - Garpar 9-6 (extra end) (Jón Ingi, Óli, Jens, Halli)
27/1 Mammútar - Svarta gengið 10-5 (Jón Ingi, Óli, Jens, Halli)
25/1 Mammútar - Fífurnar 5-2 (Jón Ingi, Óli, Jens, Halli)

Wednesday, January 20, 2010

Silfur í Gimli Cup 2009, Gull í Janúarmótinu 2010


Eftir brösótta byrjun á keppnistímabilinu (neðstir í Akureyrarmótinu, duttum út í fyrstu umferð Bikarmótsins) lifnuðu Mammútar aðeins við og náðu silfrinu í Gimli Cup (markmiðið var þó að sjálfsögðu að verja bikarinn), gerðu síðan auðvitað góða ferð á Evrópumótið í Aberdeen og hófu svo nýtt ár með því að vinna Janúarmótið án þess að tapa leik.

Frá hausti og fram að áramótum unnu Mammútar 6 leiki og töpuðu 6 hér heima og unnu 2 en töpuðu 7 ytra. Það sem af er ári 2010 hefur liðið hreint borð, hefur unnið alla fjóra leiki sína.

Þar sem bloggritara hefur alveg láðst að segja hér fréttir af Gimli Cup og Janúarmótinu þá verða hér slegnar tvær flugur í einu höggi.

Janúarmótið - 4.-18. janúar 2010
Árangur: 1. sæti, 4 sigrar
Jón Ingi, Ólafur, Jens, Haraldur, Sveinn
Úrslitaleikur: Mammútar - Garpar  8-2
B-riðill
Mammútar - Büllevål  10-4
Mammútar - Fífurnar  6-3
Mammútar - Riddarar  10-0

Gimli Cup - 2.-30. nóvember 2009


Árangur: 2. sæti, 5 sigrar, 2 töp
Jón Ingi, Ólafur, Jens, Haraldur, Sveinn

Mammútar - Üllevål  10-2
Mammútar - Víkingar  4-6
Mammútar - Svarta gengið  5-4
Mammútar - Fífurnar  8-2
Mammútar - Garpar  6-3
Mammútar - Skytturnar  8-9
Mammútar - Riddarar  9-2

Wednesday, December 30, 2009

Okkar maður krullumaður ársins 2009

Foringi vor er krullumaður ársins 2009. Þetta er í annað sinn sem Jón Ingi hlýtur þennan heiður og í þriðja sinn sem þessi viðurkenning kemur í hlut liðsmanna Mammúta því Óli Núma var krullukarl ársins 2008. Nánar í frétt á krulluvefnum.


Tuesday, December 15, 2009

Evrópumótið - leikur að tölum

Hér er til gamans smá tölfræði frá þátttöku okkar á Evrópumótinu:
  • 2 sigrar, 7 töp
  • 8. sæti af 10 í okkar riðli í B-flokki, fyrir ofan Slóvaka og Hvít-Rússa.
  • 16. sæti af 20 í B-flokki, fyrir ofan Litháa, Slóvaka, Serba og Hvít-Rússa.
  • 26. sæti af 30 í heildina í karlaflokki.
  • Unnum 33 umferðir, töpuðum 38 (eftir 6 leiki var þessi tala jöfn)
  • Skoruðum 44 steina, fengum á okkur 73
  • Skoruðum að meðaltali 5,9459 stig í leik, 16. sæti í B-flokki (fyrir ofan Grikki, Króata, Hvít-Rússa og Serba)
  • Fengum á okkur að meðaltali 9,8649 stig í leik, 15. sæti í B-flokki, fyrir ofan Grikki, Króata, Litháa, Hvít-Rússa og Serba
  • Unnum að meðaltali 4,19 umferðir í leik, 15. sæti í B-flokki, fyrir ofan Króata, Slóvaka, Grikki, Serba og Hvít-Rússa.
  • Töpuðum að meðaltali 5,41 umferð í leik, 15. sæti í B-flokki, fyrir ofan Króata, Litháa, Grikki, Serba og Hvít-Rússa.
  • Skoruðum að meðaltali 1,42 steina í þeim umferðum sem við unnum, 16. sæti í B-flokki, fyrir ofan Englendinga, Hvít-Rússa, Serba og Króata.
  • Fengum á okkur að meðaltali 1,83 steina í þeim umferðum sem við töpuðum, 16. sæti í B-flokki, fyrir ofan Hvít-Rússa, Króata, Serba og Litháa.
  • Mesta skor okkar í einni umferð: 4, gegn Austurríki
  • Mesta skor sem við fengum á okkur í einni umferð: 5, gegn Wales
  • Stærsti sigur: 10-4 gegn Hvíta-Rússlandi
  • Stærsta tap: 2-12 gegn Lettlandi

Úrslit leikja:
Ísland - Slóvakía ............... 8-3 (Jón Ingi, Óli, Jens, Halli)
Ísland - Ungverjaland ........ 2-9 (Jón Ingi, Óli, Jens, Svenni)
Ísland - Króatía ................ 5-8 (Jón Ingi, Óli, Svenni, Halli)
Ísland - Belgía .................. 4-8 (Jón Ingi, Jens, Svenni, Halli)
Ísland - Hvíta-Rússland ..... 10-4 (Jón Ingi, Óli, Jens, Halli)
Ísland - Austurríki ............. 5-11 (Jón Ingi, Óli, Svenni, Halli)
Ísland - Wales .................. 6-8 (Jón Ingi, Óli, Jens, Svenni)
Ísland - Lettland ............... 2-12 (Jón Ingi, Óli, Jens, Halli)
Ísland - Írland .................... 2-10 (Jón Ingi, Óli, Jens, Svenni)

Monday, December 7, 2009

Evrópumótið - nokkrar myndir





 
 
 
 

Ísland - Hvíta-Rússland (Iceland - Belarus) 10-4

Góður leikur í dag, frábær seinni hluti, unnum verðskuldaðan sigur en þurfum helst einn enn til að halda okkur í B-flokki. Meira síðar.

Good win against Belarus today, a deserved win, 10-4. We played well, particularly in the second half. But we need at least one more win to stay in B-group.

Ísland 4, Belgía 8

Hvað getur maður sagt í dag? Þegar maður spilar ekki nógu vel þá á maður ekki skilið að sigra. Liðið sem við spiluðum við er ekkert sterkara en við en ef maður spilar undir getu þá er ekki von á góðu. Við byrjuðum reyndar vel á móti Belgunum, unnum "LSD" skotið, það tókst aftur mjög vel og steinninn var aðeins um 10 sentímetrum frá miðjunni. Síðan stálum við fyrstu tveimur umferðunum en þá vöknuðu Belgar. Samt var jafnt þegar leikurinn var hálfnaður en við gerðum of mörg mistök í seinni hlutanum og gáfum Belgunum of mörg færi á að nýta sér mistök okkar. Þannig fór það.

Ef marka má aldur og fyrri störf lítum við svo á að í næsta leik sé einfaldlega skyldusigur gegn Hvít-Rússum. Í gær stakk bloggari upp á því við liðsfélaga sína að mögulega gætum við verið að fara að vinna þrjá leiki í röð (Króatía, Belgía, Hvíta-Rússland). Tveir af þessum leikjum hafa nú tapast og nú þýðir ekki að hengja haus heldur bæta spilamennskuna og vinna Hvít-Rússana. Væntanlega þurfum við þó að vinna eitthvert annað lið til viðbótar til að eiga möguleika á að halda Íslandi í B-flokki.

Sunday, December 6, 2009

Ísland - Króatía (Iceland - Croatia) 5-8

Tap í kvöld, eigum ýmislegt inni og getum gert marga hluti betur. Settum "Last Shot Draw" á punktinn, sem er jákvætt. Gáfum of mörg færi á okkur í kvöld með misheppnuðum steinum og þegar heppnin er líka oftar með hinu liðinu þá er ekki von á góðu. Á köflum sýndum við þó góða baráttu og andinn í liðinu er enn góður og á vonandi eftir að skila okkur sigrum á næstu dögum.

Það er orðið framorðið og stutt í næsta leik. Mætum Belgíu kl. 8 í fyrramálið og þegar þetta er skrifað eru rétt rúmlega sex tímar þangað til við þurfum að vakna. Klukkan fjögur á morgun mætum við svo Hvíta-Rússlandi.

Skorið í kvöld

 Ísland
    2 1
   2 x
 5
 Króatía
 1 2 1  2  1 1  x 8


We lost tonight against Croatia. We can do many things better, too often we made mistakes and gave the opponent a chance to score (which they took, of course). The "Last Shot Draw" before the game was on the button, but actually Croatia was only 2 cm short of the button. Added distance (minus worst shot) from all the games is used for final ranking of teams.

We play two games tomorrow, first at 8 am against Belgium and at 4 pm against Belarus. Chances are good but we have to play bettar - and we can play better.

Ísland - Ungverjaland (Iceland-Hungary) 2-9

Tap gegn Ungverjum í dag, 2-9. Gengur betur næst.

Ungverska liðið sem við spiluðum við í dag var greinilega mun betra en Slóvakarnir í gær, tæknilega mun betri og gerðu fá mistök. Við áttum samt ágæta möguleika en stundum vantaði lítið upp á að við næðum stigi í stað þess að gefa Ungverjunum stig. Eitt skiptið munaði aðeins um 5 sentímetrum til að við næðum stigi, annað skipti var síðasti steinn okkar nokkuð of hægur og Ungverjar fengu tvö stig. Í fimmtu umferðinni gekk ekki nógu vel að skjóta út steinum andstæðinganna og Ungverjar náðu þremur stigum. Staðan þegar leikurinn var hálfnaður var því orðin 1-7 og möguleikarnir á sigri farnir að minnka.

Eftir leikhlé áttum við enn möguleika á að skora eitt stig en síðasti steinn mistókst og Ungverjarnir fengu stigið. Staðan orðin 1-8. Þrátt fyrir erfiða stöðu náðum við að vinna umferð, minnkuðum muninn í 2-8 eftir sjöundu umferðina. Gott fyrir sjálfstraustið að ná stigi, hitta lokasteininum en samt var staðan orðin þannig að við þurftum eiginlega "slys" hjá Ungverjunum til að eiga einhvern möguleika á að snúa leiknum okkur í hag. Eina slysið hjá þeim varð bara ekki í leiknum, heldur uppi á "þjálfarabekknum" þegar þjálfarinn þeirra rak sig í kaffibollann sinn og hellti niður. Það hafði auðvitað lítil áhrif á leikinn! Ungverjarnir tóku svo eitt stig í áttundu umferðinni og þá ákváðum við að nóg væri komið, lokastaðan 2-9.

 Ísland 
    1   1    2
 Ungverjaland 
1
1
2
  3 1 1
   9

Erfiður leikur í dag, gátum gert betur í ýmsum atriðum en andstæðingurinn var mun betri en í gær, gerði fá mistök á meðan við vorum ekki að hitta alveg nógu vel.

Ísland - Ungverjaland / Iceland - Hungary

Leikur Íslands og Ungverjalands hófst kl. 12 í dag. Hægt er að fylgjast með skorinu umferð fyrir umferð "í beinni" - smellið hér.

Iceland started its game against Hungary at 12. For live scoring, click here.

Ísland - Slóvakía 8-3

Sigurinn gegn Slóvökum í dag var verðskuldaður, liðið spilaði vel þótt ýmislegt megi bæta fyrir næstu leiki. Það sem stendur upp úr er góð stemmning í liðinu sem skilað sér í sjálfstrausti og um leið því að sálrænt höfðum við yfirhöndina nánast allan leikinn. Slóvakar áttu síðasta stein í fyrstu umferðinni en tókst ekki að nýta sér það. Við skoruðum einn og það sama var upp á teningnum í næstu umferðum, við skoruðum þrátt fyrir að vera ekki með síðasta stein (kallast "að stela" umferð á krullumáli). Með góðri spilamennsku tókst okkur að gera fyrirliða Slóvakanna erfitt fyrir að ná góðum skotum í lokin og það dugði til að ná 5-0 forystu eftir fjórar umferðir. Ekki gat það þó gengið endalaust og í fimmtu umferðinni náðu Slóvakar loks stigi og stálu svo tveimur stigum í sjöttu umferðinni. En eins og þjálfarinn sagði á fundi með liðinu í kvöld: "Mammútar koma alltaf til baka." Eftir smá bakslag um miðbik leiksins náðum við aftur dampi og héldum áfram uppteknum hætti, gerðum Slóvökunum erfitt fyrir að nýta sér að vera með síðasta steininn. Þegar kom að lokaumferðinni var staðan orðin 8-3 og þurftu Slóvakar því að skora 5 steina í lokaumferðinni til að jafna. Smátt og smátt dvínuðu vonir þeirra þangað til að þeir áttu loks ekki nógu marga teina eftir til að gera jafnað leikinn. Þá létu þeir vopn niður falla og játuðu sig sigraða.

Sigurinn í dag var sálrænn, sigur samheldni og liðsheildar. Liðið spilaði vel og átti sigurinn skilið.


 Ísland 
1
1
1
2
   1
1
1
x
 8
 Slóvakía 
     1
2
   x 3